Saturday, September 22, 2012

BODY CHAIN - WANTED

Ég elska accessories
og þá sérstaklega svona...






Body chains eru málið yfir peysurnar í haust og skyrtur.  
Veit samt ekki hvar svona fæst á kalda landinu okkar. 

-GL-

Wednesday, August 22, 2012

KREPPUGLER

Pantaði mér þessi gleraugu um daginn á vefsíðunni Kreppugler.

Mér finnst þau flott! 



p.s það er enginn styrkur í þeim - smá hipster 

-GL-

Friday, July 27, 2012

HUGMYND FYRIR BAÐHERBERGIÐ


Rakst á þessa mynd í gær
Mjög einfalt og algjör snilld 

Er virkilega að spá í að leika þetta eftir og redda mér svona spítufjöl og pússa hana upp.

-GL-

Wednesday, July 25, 2012

HALLDÓR LAXNESS GLASAMOTTUR



Keypti mér þessar litríku, íslensku glasamottur í dag, 
sjúklega flott hönnun sem fæst í Epal í Skeifunni.

Mér finnst þær æði..

-GL-

SMEG ÍSSKÁPAR

Þeir eru svo fallegir og sætir.
Smeg ísskáparnir koma með retro stemninguna í eldhúsið 
enda eru þeir alveg í anda 50's.


Bleikur og fínn 
Myntugrænn - er alveg að koma sterkur inn.




Svartur kemur líka flottur út

Hef alltaf verið skotin í þessum ísskápum og langar í þá. 
Fínir til að poppa aðeins upp á eldhúsið hjá manni.
En það yrði erfitt að ákveða rétta litinn þar sem þessir ísskápar 
koma í öllum regnbogans litum.

-GL-

Tuesday, July 24, 2012

FJÁRSJÓÐSLEIT Í KOLAPORTINU - SKÓR

Á svo yndislega vinkonu sem var stödd í 
Kolaportinu um helgina  og sá skó sem mig hefur alltaf langað í.  
Þeir voru akkúrat í minni stærð - og tók þá fyrir mig.

Takk Hildur þú ert æði :*

Núna verður það framvegis Kolaportið alla laugardaga, 
ótrúlegt hvað maður finnur mikið af dóti þar og fötum.  

Again&Again skór - notaðir, kosta í dag enn þá um 20 þúsund.
Fékk þá á slikk.
Keypti mér þessa Zöru skó um daginn - mega fínir og nettir.
Verst að ég kann ekki að ganga lengur á pinnahælum eftir
að hafa verið á svona stórum og breiðum hælum.
Eigið góðan dag í sólinni 
-GL-