Saturday, September 22, 2012

BODY CHAIN - WANTED

Ég elska accessories
og þá sérstaklega svona...






Body chains eru málið yfir peysurnar í haust og skyrtur.  
Veit samt ekki hvar svona fæst á kalda landinu okkar. 

-GL-

Wednesday, August 22, 2012

KREPPUGLER

Pantaði mér þessi gleraugu um daginn á vefsíðunni Kreppugler.

Mér finnst þau flott! 



p.s það er enginn styrkur í þeim - smá hipster 

-GL-

Friday, July 27, 2012

HUGMYND FYRIR BAÐHERBERGIÐ


Rakst á þessa mynd í gær
Mjög einfalt og algjör snilld 

Er virkilega að spá í að leika þetta eftir og redda mér svona spítufjöl og pússa hana upp.

-GL-

Wednesday, July 25, 2012

HALLDÓR LAXNESS GLASAMOTTUR



Keypti mér þessar litríku, íslensku glasamottur í dag, 
sjúklega flott hönnun sem fæst í Epal í Skeifunni.

Mér finnst þær æði..

-GL-

SMEG ÍSSKÁPAR

Þeir eru svo fallegir og sætir.
Smeg ísskáparnir koma með retro stemninguna í eldhúsið 
enda eru þeir alveg í anda 50's.


Bleikur og fínn 
Myntugrænn - er alveg að koma sterkur inn.




Svartur kemur líka flottur út

Hef alltaf verið skotin í þessum ísskápum og langar í þá. 
Fínir til að poppa aðeins upp á eldhúsið hjá manni.
En það yrði erfitt að ákveða rétta litinn þar sem þessir ísskápar 
koma í öllum regnbogans litum.

-GL-

Tuesday, July 24, 2012

FJÁRSJÓÐSLEIT Í KOLAPORTINU - SKÓR

Á svo yndislega vinkonu sem var stödd í 
Kolaportinu um helgina  og sá skó sem mig hefur alltaf langað í.  
Þeir voru akkúrat í minni stærð - og tók þá fyrir mig.

Takk Hildur þú ert æði :*

Núna verður það framvegis Kolaportið alla laugardaga, 
ótrúlegt hvað maður finnur mikið af dóti þar og fötum.  

Again&Again skór - notaðir, kosta í dag enn þá um 20 þúsund.
Fékk þá á slikk.
Keypti mér þessa Zöru skó um daginn - mega fínir og nettir.
Verst að ég kann ekki að ganga lengur á pinnahælum eftir
að hafa verið á svona stórum og breiðum hælum.
Eigið góðan dag í sólinni 
-GL-

Friday, June 29, 2012

JÚNÍ HAMINGJA

***
Yndislegt líf verð ég að segja 

Júní hjá mér er búinn að einkennast af mikilli vinnu, sól og sumri.  
Núna loksins hitti ég systur mína eftir tvö ár.  Hún er búsett í Kanada ásamt unnusta, og dóttur.

Hún er hingað komin til Íslands að gifta sig.  

Ég er svo spennt fyrir þessu öllu saman.  

Með pabba okkar.

Mamma með tvö af þremur barnabörnum sínum.

Leti líf - tana með mömmu sinni.

Fékk nýtt úr! Orðið strax uppáhalds.
-GL-

Thursday, June 21, 2012

HVERSU ERFITT ER AÐ FÁ HVÍTA CONVERSE SKÓ?

Hversu erfitt er að fá hvíta Converse skó?

Svarið ætti að vera: mjög auðvelt, vinsælir skór.

En staðreyndin er sú að það er ekki..

Ég á svarta og ég elska þá, en mig langar í hvíta.  
Þeir koma bara ekkert í minni stærð til landsins - sem er fáránlegt.

Reyndi að finna þá erlendis á netinu, allsstaðar búnir.

** Wanted **





-GL-

Wednesday, June 20, 2012

MIÐVIKUDAGAR - PRETTY LITTLE LIARS

Það besta við miðvikudaga í sumar eru að þættirnir Pretty Little Liars eru byrjaðir aftur..

Fæ ekki nóg af þessum þáttum! 

Endilega horfið á þá stelpur... alveg þess virði 










-GL-

Tuesday, June 19, 2012

STÓR GULL ÚR - WANTED

Er með eitthvað thing fyrir stórum gull úrum núna.

Á Casio úr nema minni týpuna, langar í stóru týpuna núna! 

Flott að hafa svona stórt gullúr og armbönd í stíl við.








-GL-

Saturday, June 16, 2012

MY STEFANIE'S BIG 25

Stefanie vinkona hélt upp á 25 ára afmælið sitt í gær

Alltaf gaman að hitta hana

hún býr erlendis en þegar við hittumst að þá er alltaf eins og 

hún hafi aldrei farið, það er sönn vinátta. 


Bleiki nýji eyrnalokkurinn kemur mjög vel út!


Fallega afmælisstelpa

Ellen og Hófi 


-GL-