Wednesday, February 29, 2012

INSTAGRAM Í iPHONE

   

Margir sem þekkja mig vita að ég á iPhone og er kolfallin "apple fangirl".  Ég elska símann minn og læt hann ekki frá mér.  Ég er búin að ná mér í mörg öpp í símann, sum eru keypt og önnur hef ég sótt frítt. 

Ég á þegar mörg uppáhalds öpp en það sem stendur uppi á toppnum er klárlega instagram. 


Instagram er app fyrir iPhone sem er notað til að breyta myndum og deila þeim inn á aðganginn sinn.  Hægt er að setja allskona filtera á myndirnar sínar til að fá retro útlit á þær.  Síðan er hægt að deila þeim á facebook ef maður vill.  Einnig er hægt að followa vini sína (af facebook, tengiliðum og maili.)  Hægt er að "tagga" staði og fólk inn á myndirnar líka.

Það sem mér finnst svo skemmtilegt við instagram er þegar fullt af fólki út um allan heim eru að followa mann og skoða myndirnar hjá manni og ég sömuleiðis hjá þeim.  Bæði áhugaljósmyndarar og aðrir sem eru að taka myndir af daglega lífi sínu.  

Myndir teknar með instagram

 


 
                           

             Instagram aðgangurinn minn er gudbjorglilja.  Follow me, það besta er að appið er frítt :) !!

-GL-

Tuesday, February 28, 2012

RAUÐAR VARIR

"Beauty to me is about being comfortable in your own skin.  That, or a kick-ass red lipstick" 
- Gwyneth Paltrow







Ég elska rauða varaliti, þeir gera svo mikið fyrir mann.  Ganga bæði jafn vel við ljósa húð og dökka.
Að vísu þá var ég lengi að þora að vera með rauðar varir, fannst ég eldast þannig.  En svo þegar ég prófaði mismunandi liti af rauðum að þá sá maður að sumir fóru manni ekkert vel og aðrir mjög vel. 
Á þegar nokkra og var að eignast nýjan í safnið mitt.. hann fer fljótt að verða uppáhalds.


Heitir China Red og er frá Make up Store.  Endist súper vel á vörunum og enn þá betur ef settur er varablýantur undir.  


- GL -

Sunday, February 26, 2012

PINK - HOT OR NOT?




*** KLÁRLEGA HOT ***

Sumarið 2012 verður litríkt, ætla að finna mér bleikar gallabuxur sem fyrst! 

- GL-